Thursday, December 22, 2011

2 dagar til jóla.



Tíminn flýgur áfram. Kalli orðin 4 mánaða stubbur og heldur áfram að dafna vel. Hann er orðin eins og lítill búdda í laginu, virðist stækka ágætlega á þverveginn drengurinn. Kannski líkur mömmu sinni að því leiti ;) Kalli er farinn að spæna upp stofugólfið í göngugrind og er að fíla það vel en getur þó fokið örlítið í karlinn þegar hann sér eitthvað sem hann vill tæta. Þá spólar hann þar fyrir framan og baðar út höndum á ógnarhraða. Það virðist stefna í ágætlega mikinn tætara. Ég sé fram á að það sé ekki langt í að allir skraut munir verði færðir í hærri hæð, allavegna svona það sem manni stendur ekki sama á.
Desember flaug hjá á einhverjum ógnar hraða og allt í einu klukkan korter í jól og bara tveir dagar í aðfangadag! Allt að smella saman og flest öllum undirbúning lokið, nema þetta smotterí sem að gerist alltaf á seinustu stundu. Á morgun er það svo Skata og hangiket og á aðfangadag leggst maður í hamborgarhrygginn og terturnar og svo eru það tvö jólaboð og ein hangiketsheimsókn á Þórólfsgötuna.... Ætli maður eyði svo ekki bara þriðja í jólum á Akranesi, á sjúkrahúsinu með hjartaáfall eftir allt þetta sukkerí!

Tuesday, November 29, 2011

Nóvember 2011


Fyrsti sunnudagur í aðventu búinn og desember allveg að skríða inn. Ég er að sjálfsögðu búin að henda upp jólaljósum og rífa upp jólaskrautið. Kalli dafnar vel og kinnanarnar á barninu virðast stækka dag frá degi og er duglegur og yndislegur :) Hann fór í sprautu um miðjan nóvember og orgaði að sjálfsögðu eins og ljón á hjúkkuna og lækninn. Ég hef grun um að hann sé að æfa röddina fyrir komandi óperuferil sinn ;p Annars fara dagarnir hans í það að æla og pissa á mömmu sína (hann er ekki allveg komin með á hreint hvernig á að tríta dömu), milli þess sem hann sefur og uppgötvar meir og meir hvernig hann getur notað þessar hendur sem hann er með.
Ég sé fram á að barnið verið tætið með eindæmum miðað við æsingin og einbeitninguna sem grípur hann þegar það er eitthvað sem fangar athyglina og hann langar til að pota í. Það er líka magnað að fylgjast með hvað hann er orðin meðvitaður um það hvað virkar til að fá sínu fram, sem hann fær yfirleitt að sjálfsögðu á endanum enda ekki annað hægt með þrjár eldri systur sem dekra við mann og verandi örverpi pabba síns og frumburður mömmu sinnar. Þetta stefnir eflaust í algjöran frekjukálf :) Hann verður örugglega þægasta barn í heimi bara svo lengi sem hann fær það sem hann vill ;)

Thursday, October 20, 2011

Heimsins besti Kalli


9 Vikna skoðun í dag. Kalli sýndi herrmannstakt og sleppti því að endurtaka leikinn og míga yfir móður sína eins og seinast. Flottur strákur, orðin 58.5 cm og 5770 gr.

Thursday, October 13, 2011

Thursday, September 29, 2011

Fór með Kalla í ungbarnaeftirlit í dag. Stubburinn orðin 5180 grömm og heilir 57 sentimetrar.